Persónulegur AI-þjálfari fyrir annasamt líf

Finnst þér lífið stundum of flókið?

Of margar skyldur og enginn tími til að hlúa að þér?

Birta er persónulegur AI-þjálfari sem hjálpar þér að ná yfirsýn, velja hvað skiptir máli og gefa eigin markmiðum pláss í annasömu lífi.

Segðu upp hvenær sem er · Aðgangur út greitt tímabil

· · · · ·

Dagurinn þinn. Markmiðin þín. Á einum stað.

Skipulag og persónuleg þjálfun sem þú getur gripið í þegar þér hentar. Fyrir það sem þarf að gera og það sem þig langar að gera.

Þjálfari sem kynnist þér

Ræddu það sem er á þínu borði. Birta notar það sem þú deilir til að hjálpa þér að sjá möguleika og finna næstu skref.

Náðu yfirsýn

Safnaðu verkefnum og listum á einn stað. Raðaðu því sem þarf að gera í dag og geymdu hitt þar til það kemst að.

Gefðu draumunum pláss

Skráðu það sem þig langar að gera, hvort sem það er nýtt verkefni, breytt venja eða stór draumur.

Rútínur sem passa í lífið

Byggðu upp venjur sem styðja þig í amstri dagsins og haltu utan um framvinduna.

Hugsanir á einn stað

Skrifaðu í dagbókina og finndu aftur það sem þú vilt muna. Pláss fyrir það sem kemst ekki á verkefnalistann.

Sjáðu hvað þokast áfram

Haltu utan um framfarirnar og veldu eigin verðlaun þegar þú nærð áfanga.

Veldu það sem hentar þér

Veldu áskriftina sem hentar þér og kynntu þér Birtu í þínum eigin degi.

Mánaðaráskrift
$49,99/mán
Sparar 50%
Ársáskrift
$299,99/ári

Avatarsamtöl eru ekki í boði og eru ekki innifalin í núverandi áskrift.

Einkalífið þitt er ekki söluvara

Heilsan þín fer aldrei í gervigreind. Dagbókin þín fer þangað aðeins ef þú leyfir það, og Birta geymir mynstur, aldrei orðréttan texta. Þú getur sótt öll gögnin þín hvenær sem er, og eytt þeim líka.